SAGA3KN05 - Saga - Hvernig knattspyrna stjórnar heiminum
Undanfari : SAGA2HÍ05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum er fjallað um sögu og þróun knattspyrnunnar og sérstaklega sögu og þróun knattspyrnuáhangenda frá upphafi til dagsins í dag. Efnið er skoðað út frá mörgum hliðum. Áfanginn er samvinnuverkefni kennara og nemenda þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæði og virkni nemenda. Nemendur tileinka sér vinnubrögð sagnfræðinnar í gegnum verkefnavinnu. Við verkefnavinnuna er lögð áhersla á að nemendur geti nýtt sér þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér til að geta miðlað henni á frumlegan, fjölbreyttan og skapandi hátt í gegnum ólík miðlunarform. Sérstök áhersla er á að efla nemendur í samvinnu. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur taki ábyrgð á eigin námi og geti metið eigið framlag og annarra á uppbyggilegan hátt með fjölbreyttum matsaðferðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtakinu nýrasimsa
- deilum trúarhópa í borgum og löndum
- ólíkum menningarkimum sem tengjast knattspyrnu
- áhrifum mannkynssögunnar á þróun knattspyrnunnar og knattspyrnustuðningsmanna
- mismunandi sjónarhornum á sögu knattspyrnunnar, t.d. eftir löndum/landsvæðum og kynjum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér fjölbreyttra heimilda um mismunandi viðfangsefni
- skoða viðfangsefnið út frá mismunandi sjónarhornum
- lesa og skilja fjölbreytta texta bæði á íslensku og erlendum tungumálum
- nota heimildir á viðurkenndan hátt
- miðla efni á fjölbreyttan og skapandi hátt
- vinna jafnt sjálfstætt og með öðrum að verkefnum
- meta eigið framlag og framlag annarra með fjölbreyttum aðferðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota viðkenndar aðferðir við að setja hugðarefni sín fram
- miðla fróðleik á áhugaverðan og fjölbreyttan hátt
- meta þróun knattspyrnunnar frá upphafi til dagsins í dag
- skoða sögu knattspyrnunnar frá mörgum sjónarhornum
- vinna með öðrum að sameiginlegu markmiði
- meta vinnu sína og annarra á uppbyggilegan hátt