SAGA2HÍ05 - Saga - Inngangur að sögu
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Áfanginn er inngangsáfangi í sögu á öðru þrepi og er skylda á Félagsvísindabraut. Nauðsynlegur undanfari fyrir alla aðra söguáfanga hvort sem þeir eru á öðru eða þriðja stigi. Viðfangsefnið eru þættir úr sögu heimsins og Íslands til okkar daga. Skoðaðir verða helstu stóratburðir tímabilsins en jafnframt leitast við að öðlast innsýn í daglegt líf almennings á Íslandi eða í Evrópu. Leitast er við í áfanganum að uppfylla grunnþætti menntunar og að nemendur geti lesið fræðitexta um sitt nánasta samfélag og sögu þess. Þá fá nemendur innsýn í mikilvægi sjálfbærni, sögu heilbrigðis og velferðar í íslensku samfélagi. Nemendur öðlist færni og skilning á hugtökum á borð við lýðræði og mannréttindi. Fjallað verður um jafnréttisbaráttu kvenna á Íslandi. Nemendur þjálfa sig í sköpun með ýmsum verkefnum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þróun íslensks samfélags frá 1800 til 2000
- áhrifum frönsku byltingarinnar og frelsisstríðs BNA á stjórnmálaþróun á 19. öld
- breytingum sem hafa orðið á hugmyndum um þjóðríkið á tímabilinu
- ástæðum og áhrifum sjálfstæðisbaráttu Íslendinga
- ástæðum og afleiðingum heimstyrjaldanna tveggja bæði á Íslands- og mannkynssöguna
- hugmyndum íhaldsstefnunnar, frjálslyndisstefnunnar og sósíalismans
- orsökum og afleiðingum stofnunar Sovétríkjanna
- orsökum og afleiðingum Kalda stríðsins
- atvinnusögu Íslendinga og stéttabaráttu á 19. og 20. öld
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með staðreyndir og kenningar
- beita grundvallarvinnubrögðum í heimildarýni og heimildaleit
- temja sér öguð vinnubrögð og nota ýmsar aðferðir til að leysa verkefni sín
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja fram skoðanir sínar í riti, ræðu eða öðru formi
- geta borið saman atburði og finna orsakasambönd á milli þeirra
- geta tekið þátt í umræðum um efnisþætti áfangans og færa rök fyrir skoðunum sínum