RÖKR3VB04(AV) - Rökrásir 1 - Vélstjórn

Undanfari : RAMV2VA04(CV)
Í boði : Haust

Lýsing

Nemendur öðlast undirstöðuþekkingu í gerð rökrása og fá þjálfun í hönnun og greiningu á einföldum rökrásum, tengingum og forritun þeirra. Þeir þjálfast í að setja saman og tengja rökrásahlið fyrir ákveðna virkni, skrifa formúlu samsettrar rásar og prófa virkni hennar. Nemendur öðlast þekkingu og skilning á því hvernig hægt er að byggja upp rökrásavirkni í iðntölvum og forritanlegum rökrásum. Þeir kynnast hugtökunum forrit, stigarit og rim og fá þjálfun í að setja upp einfalda stýringu í tölvunni og þjálfun í að tengja búnað við inn- og útganga. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu hugtökum stafrænnar tækni
  • grunnrökrásahliðum, OR, AND og NOT
  • rökrásahliðum NOR og NAND
  • hvernig hægt er að nota NOR og/eða NAND hlið til að fá fram grunnvirknina, OR, AND og NOT
  • mismunandi talnakerfum, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal
  • samrásum (IC-circuit) með rökrásahliðum (C-MOS eða TTL)
  • grunnskipunum í C og C++ forritun


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa virkni einfaldra rökrása
  • hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
  • útskýra grunnrökrásahlið og rökrásahlið með rofahliðstæðunni og setja upp sannleikatöflu þeirra og bólskar (Boolean) formúlur
  • bera saman mismunandi talnakerfi, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal við tugakerfið
  • tengja og prófa samrásir með rökrásahliðum
  • forrita einfaldar örgjörvarásir


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrifa formúlur í rökrásavirkni og vinna í hermisforritum
  • nota sannleikstöflur og bólskar jöfnur til að skilgreina virkni rökrása
  • setja upp einfaldar stýringar í iðntölvum og örgjörvarásum
  • tengja búnað við inn- og útganga iðntölvu
  • teikna stigarit eftir:
    • a) formúlu
    • b) segulliðarás
    • c) textalýsingu
  • forrita örtölvukerfi sem stýra einföldum ferlum