RLTK3RB05 - Raflagnateikning 2

Undanfari : RLTK2RB05
Í boði : Haust

Lýsing

Nemendur öðlist vald á teikningalestri á stærri neysluveitum s.s þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 Amper. Þá læra nemendur að teikna slíkar veitur; teikna sniðmyndir af gegnumtökum, afstöðumyndir auk grunnmynda. Lögð er áhersla að nemendur læri að magntölu- og kostnaðartaka ofangreindar veitur. Tölvutæknin er nýtt við gerð raflagnateikningana seinni hluta áfangans.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • íslenskum staðali um raflagnateikningar fyrir neysluveitur allt að 200 A
  • heitum og hugtökum raflagnateikninga
  • magntöku og kostnaðartöku raflagna
  • helstu teikniforritum
  • öllum almennum og sértækum teiknitáknum
  • teiknireglurum og staðalákvæðium varðandi þurra-, raka– og rykuga staði


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa úr raflagnateikningum
  • teikna í ofangreindar neysluveitur
  • beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í öllum neysluveitum
  • nýta sér minnst eitt teikniforriti sem notað er við gerð teikninga
  • velja og ákvarða búnað og raflagnaefni fyrir allar neysluveitur