REIT2VB04(AV) - Rafeindatækni 1 - Vélstjórn
Undanfari : RAMV2VA04(BV)
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum öðlast nemendur haldgóða grunnþekkingu á rafeindatækni og uppbyggingu og virkni rafeindatækja, eiginleikum íhluta, hlutverki þeirra og virkni. Þeir öðlast þekkingu og færni í rafeindafræðum með það að markmiði að þeir geti skilið og reiknað einfaldar rafeindarásir. Þeir fá þjálfun í að tengja og mæla afriðilsrásir og stýrirásir fyrir transistora og týristora og notkun aðgerðamagnara. Einnig fá nemendur þjálfun í að meta ástand rafeindatækja og gera einfaldar bilanagreiningar með mælitækjum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vinnumáta og notkun ýmissa mótstaða og litamerkingum til að ákveða stærð línulegra mótstaða
- þéttum, uppbyggingu þeirra, hleðslu og afhleðslutíma og mun á póluðum og ópóluðum þéttum m.t.t. tenginga
- viðnáms- og rýmdarmælingu þétta
- uppbyggingu díóða, vinnumáta þeirra, hvernig á að ákvarða stærð þeirra í afriðilsrás og hvernig þær haga sér í straumrás
- myndun transistora og vinnumáta þeirra
- samanburðarmagnara og helstu notkunarsviðum hans
- notkun og vinnumáta íhluta í rafeindatækjum
- myndun týristora og muninum á þeim og transistorum
- áhrifum spanálags í afriðilsrás
- stýrirásum fyrir týristora og geti útskýrt rásir sem byggjast á virkni einlags transistorsins (UJT) annars vegar og sagartannarspennu hins vegar
- mismun á núllstýringu og fasastýringu og við hvaða aðstæður þær eru notaðar
- notkun áriðunarrása í tíðnibreytum og vektorastýringum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- teikna og útskýra ein- og þriggja fasa afriðun
- útskýra hugtakið straummögnun transistora
- viðnámsmæla transistora
- teikna og útskýra rás fyrir hálfbylgju- og heilbylgjuafriðun með og án síuþéttis
- teikna afriðuðu spennuna fyrir og eftir tengingu þéttisins
- teikna magnararás með einum transistor fyrir jafnstraum og útskýra vinnumáta hennar
- kanna ástand íhluta og meta hvort þeir séu í lagi
- teikna og útskýra algengar afriðilsrásir með týristorum bæði einfasa og þriggja fasa
- teikna afriðuðu spennuna fyrir mismunandi kveikihorn stýrðu díóðunnar, útskýra meðalgildi afriðuðu spennunnar fyrir mismunandi opnunarhorn og nota formúlur sem gefa samhengið milli afriðaða meðalgildisins og virka gildis riðspennunnar inn á stýrða afriðilinn
- teikna og útskýra algengar spennustýrirásir með tríökkum og teikna stýrðu spennuna fyrir mismunandi opnunarhorn tríakksins
- teikna og útskýra einfaldar áriðunarrásir
- útskýra vinnumáta týristora
- útskýra tilganginn með púlsvíddarmótun
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- ákveða stærðir í spennugjafa, sem tekur inn riðspennu og gefur út jafnspennu, út frá gefnum forsendum
- vinna kerfisbundið að bilanagreiningu í einföldum rafeindarásum
- meta ástand rafeindatækja og gera einfaldar bilanagreiningar í rafeindarásum