RAMV2VB04(DV) - Rafmagnsfræði 4 - Vélstjórn
Undanfari : RAMV2VA04(CV) og STÆR2VH05
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur öðlast djúpan skilning á eðli riðstraums og þeim lögmálum og hugtökum sem þar eiga við. Þeir læra að nota vektoramyndir og stærðfræðilega útreikninga til að öðlast skilning á orsökum og áhrifum fasviks í einfasa og þriggja fasa riðstraumsrásum. Ennfremur öðlast nemendur leikni í notkun vektoramynda við útreikninga RLC rása.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallarhugtökum riðstraums-fræðinnar
- fasviki í riðstraumsrásum og orsökum þess
- notkun vektora við að ákvarða stærðir í riðstraumsrásum
- notkun hornafalla í stærðfræði til að reikna út stærðir í vektoramyndum
- aðferðum við að leiðrétta fasvik í riðstraumsrásum
- skiptingu rafafls í raun-, laun- og sýndarafl
- RLC rafrásum og einföldum raforkukerfum skipa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera vektoramyndir og útreikninga á einfasa riðstraumsrásum með blönduðu álagi
- gera útreikninga á þriggja fasa riðstraumsrásum með og án fasviks
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- átta sig á raforkukerfum skipa og annast rekstur þeirra
- útskýra orsakir og áhrif fasviks í riðstraumsrásum
- leiðrétta fasvik í raforkukerfum
- skýra með vektoramyndum og stærðfræðilegum útreikningum áhrif fasviks í riðstraumsrásum