RAMV2VA04(CV) - Rafmagnsfræði 3 - Vélstjórn

Undanfari : RAMV2VA04(BV)
Í boði : Haust

Lýsing

Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu/straum gilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemendur geti nýtt sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í reikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemendur læri hvað fasvik er og geti reiknað það, mælt og leiðrétt. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraum svo sem sveiflusjá og tíðnigjafa auk þess sem nemendur skulu læra að nýta sér hermiforrit til mælinga.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli Faradeys og Lenz lögmáli
  • helstu lögmálum segulmagns
  • helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi
  • teiknitáknum í span- og rýmdarrásum
  • helstu reikningum í riðstraumsrásum
  • fasviki


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani
  • nota helstu mælitæki fyrir riðstraumsrásir
  • teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar
  • reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum
  • tengja einfaldar rásir þar sem segulmagn er notað
  • tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum með hjálp hermiforrits
  • skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra