RAMV2VA04(BV) - Rafmagnsfræði 2 - Vélstjórn
Undanfari : RAMV1VA04(AV)
Í boði
: Haust
Lýsing
Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu/straum gilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemendur geti nýtt sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í reikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemendur læri hvað fasvik er og geti reiknað það, mælt og leiðrétt. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraum svo sem sveiflusjá og tíðnigjafa auk þess sem nemendur skulu læra að nýta sér hermiforrit til mælinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli Faradeys og Lenz lögmáli
- helstu lögmálum segulmagns
- helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi
- teiknitáknum í span- og rýmdarrásum
- helstu reikningum í riðstraumsrásum
- fasviki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani
- nota helstu mælitæki fyrir riðstraumsrásir
- teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tengja einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar
- reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum
- tengja einfaldar rásir þar sem segulmagn er notað
- tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum með hjálp hermiforrits
- skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra.