RAFM3RF05 - Rafmagnsfræði 6
Undanfari : RAFM3RE05
Í boði
: Haust
Lýsing
Í þessum áfanga er fjallað um skipulag raforkukerfa, þ.e. framleiðslu, flutning og dreifingu og fjallað um uppbyggingu mismunandi raforkudreifikerfa m.a. með tilliti til öryggisráðstafana. Farið er í uppbyggingu helstu lágspennudreifikerfa hér á landi og gerð jafngildismynd af hverjum flokki. Farið er yfir vektormyndir lágspennudreifikerfa og merkingar slíkra kerfa samkvæmt stöðlum (CENELEC). Fjallað er um spennufall og afltap í lágspennudreifikerfum og helsta varnarbúnað og virkni hans. Einnig er fjallað um mismunandi álag í fjölfasakerfum, mikilvægi álagsjöfnunar og áhrif mismunandi álags í fjölfasa lágspennudreifikerfum. Þá er gerð grein fyrir áhrifum jarðskautsviðnáms og hringrásarviðnáms á bilunarstrauma í neysluveitum. Fjallað er lítillega um háspennukerfið og þeim öryggiskröfum sem þar gilda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- framleiðslu, flutning og dreifingu á raforku í mismunandi þrífasa lágspennukerfum
- varnar- og öryggisbúnaði í þessum kerfum
- nauðsyn jarðtenginga og spennujöfnunar í veitukerfum
- viðbrögðum við mismunandi álagi í kerfunum
- þekkja til háspennukerfisins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna strauma, spennur, afl og fasvik í mismunandi veitukerfum við mismunandi álag
- teikna tengi- og vektoramyndir af mismunandi veitukerfum og álagi þeirra
- leysa flóknari verkefni með ójafnlægu álagi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leiðbeina um val á réttum búnað eftir aðstæðum í viðkomandi raforkukerfi
- velja réttar lausnir við uppsettningu á mismunandi álagi í mismunandi veitukerfum
- skipuleggja aðgerðir við lausn á ójafnlægu álagi og lægfæringum á fasviki álags