RAFL3GD03 - Raflagnir 4

Undanfari : RAFL2GC03
Í boði : Haust

Lýsing

Í þessum áfanga er lögð áhersla á tengingar og efnisval á meðalstórum boðskiptakerfum s.s. tölvukerfi, símalagnir, dyrasímakerfi, loftnetskerfi og ljósleiðara. Einnig verða tengd brunakerfi bæði Analog og rásastýrð. Gerðar verða mælingar og farið í bilanarleit í þessum kerfum.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • lagningu bruna og boðskiptalagna
  • Kröfum um frágang á köplum í rennum, bökkum og stigum
  • uppröðun í tengiskápa
  • mismunandi gerðum kapla eftir aðstæðum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tengja boðskiptalagnir við krosstengibretti (patcpanil) og annan endabúnað
  • leggja og tengja tölvu, síma, hljóð, mynd og loftnetslagnir á fagmannlegan hátt
  • setja upp og tengja mismunandi brunakerfi
  • finna út bilanir og gera við þær


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja loftnetskerfi og gera mælingarskýrslu
  • tengja dyrasímakerfi og mæla út bilanir
  • tengja boðskiptalagnir og krosstengibretti
  • gera mælingarskýrslu og útlitsmynd af skáp
  • geta valið búnað í ljósleiðarakerfi og umgengist búnaðinn af þekkingu
  • ganga frá lögnum að brunakerfum og viðverukerfum
  • tengja stjórnstöðvar brunakerfa