NEYS2PL04 - Neysluvatnskerfi - Pípulagnir

Undanfari : Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er farið yfir hvernig lagnir fyrir heitt og kalt neysluvatn eru lagðar að töppunarstöðum í byggingum. Fjallað er um lagnaefni sem til greina kemur, allar gerðir tenginga og tengiaðferðir. Skoðaðar eru mögulegar lagnaleiðir með sérstakri áherslu á að sem minnst leiðni verði milli heitrar og kaldrar leiðslu. Sérstök áhersla er lögð á einangrun röra, ekki síst kaldra röra með tilliti til daggarmyndunar. Reiknaðar eru röravíddir út frá fjölda töppunarstaða og áætlaðrar notkunar á vatni.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • lagnaefnum og búnaði sem notaður er í neysluvatnslagnir innanhúss, s.s. tengjum, ventlum, stýritækjum, festingum o.fl.
  • áhöldum og tækjum sem notuð eru við lagningu neysluvatnslagna
  • áhöldum og rafmagnsverkfærum til að leggja og festa upp lagnir
  • búnaði til að yfirfara og þrýstiprófa neysluvatnskerfi
  • öryggisreglum og hlífðarbúnað fyrir viðkomandi áhöld og tæki
  • kröfum um brunavarnir við lagnir milli brunahólfa


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja lagnaefni með hliðsjón af aðstæðum
  • velja rétt áhöld og tæki til að tengja saman lagnaefni og búnað
  • velja lagnaleiðir og einangrun fyrir neysluvatnslagnir innanhúss
  • meta nauðsyn hljóðdempunar frá lögnum og hvernig festa skuli neysluvatnslagnir
  • vinna með snittvélar, þrýstitangir, suðutæki og lóðtæki til tengingar lagna úr málmum
  • vinna með þrýstitangir og suðuvélar til að tengja lagnir úr plasti


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leggja neysluvatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn innanhúss
  • nota íslenska gagnabankann um vatn
  • leggja neysluvatnskerfi í byggingar í samræmi við íslenska staðla
  • ganga á öruggan hátt frá lögnum í votrýmum í samvinnu við aðra iðnaðarmenn
  • þrýstiprófa neysluvatnskerfi á mismunandi hátt eftir lagnaefnum
  • skrá og merkja ventla og stýritæki neysluvatnskerfa og setja upp skýringartöflur
  • áætla neysluvatnsnotkun og reikna rörasverleika
  • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað