NÆRI2NN05 - Næringarfræði - Grunnáfangi
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum er fjallað um ráðleggingar landlæknis um orku- og næringarefnin, hlutverk þeirra, ráðlagða dagskammta og skortseinkenni. Farið er í gildandi lög og reglugerðir um aukefni í matvælum og merkingar umbúða. Farið er í næringarefnatöflur/-forrit til að reikna út næringargildi máltíða. Lögð er áhersla á að nemendur geti með gagnrýnum hætti metið gildi fullyrðinga um næringu í fjölmiðlum og á netinu. Fjallað er um næringarþarfir mismunandi hópa, sérfæði á sjúkrastofnunum og helstu gerðir sérfæðis sjúklinga og forsendur fyrir því.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orku- og næringarefnum, hlutverkum þeirra, skortseinkennum og í hvaða matvælum þau eru helst að finna
- ráðleggingum landlæknis um mataræði og ráðlögðum dagskömmtum um vítamín og steinefni
- lögum og reglugerðum um aukefni og vörumerkingar matvæla
- aðferðum til að meta líkamsástand og áhrifa megrunarkúra á líkamann
- næringarþörfum sérstakra hópa og sjúklinga ásamt sérfæði á sjúkrastofnunum
- næringartöflum og -forritum til að reikna út orku- og næringarinnihald í máltíðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa í hollustu einstakra fæðutegunda m.t.t. orku- og næringarinnihalds
- reikna út næringargildi matseðils með næringartöflum/-forritum
- lesa úr upplýsingum á umbúðum matvæla
- nota BMI stuðulinn, klípu- og leiðnimæla til að meta líkamsástand
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja sér og sínum fæðu samkvæmt ráðleggingum frá Embætti landlæknis
- túlka niðurstöður næringarforrita á mataræði einstaklings
- setja upp hollan dagsmatseðil
- meta með gagnrýnum hætti upplýsingar um næringu sem koma frá t.d. fjölmiðlum eða af netinu