NÆRI2NH05 - Næringarfræði - Næringarfræði fyrir einka- og styrktarþjálfara

Undanfari : Inngangur að næringarfræði
Í boði : Alltaf

Lýsing

Í þessum áfanga verður farið í næringu almennings og íþróttafólks. Áhersla er lögð á hagnýta þekkingu fyrir einka- og styrktarþjálfara s.s. orkuþörf, þyngdarstjórnun, átröskun, fæðubótarefni og árangursaukandi efni, orkuinnihaldi og næringargildi mataræðis auk mikilvægi þess að neyta næringarríkrar fæðu. Farið verður yfir tískustrauma í mataræði og hvernig mataræðið tengist lífsstílstengdum sjúkdómum.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ráðleggingum um mataræði fyrir íþróttafólk
  • matvælalöggjöf á Íslandi og reglur um merkingar matvæla og forsendur sem þurfa að liggja að baki fullyrðingum á umbúðum
  • helstu einkennum íslensks mataræðis og matarmenningar og hvaða næringartengdu atriði þarf að huga að
  • helstu fæðubótarefnum á markaðnum í dag
  • helstu tískustraumum í mataræði
  • mismunandi orkuþörf fólks og skilning á andlegum og líkamlegum þáttum sem hafa áhrif á matarhegðun s.s. átröskun og lífsstílstengdum sjúkdómum
  • mögulegum hindrunum sem fólk í yfirþyngd er að glíma við í tengslum við mataræði og hugsanlegum lausnum við þeim hindrunum
  • fæðuofnæmi og fæðuóþoli
  • fyrirbyggjandi ráðleggingum um mataræði fyrir ýmsa lífsstílstengda sjúkdóma s.s. hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein, sykursýki og beinþynningu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna út orkuþörf og hlutföll orkuefnanna
  • lesa og skilja innhaldslýsingar matvæla og miðla upplýsingum til skjólstæðinga
  • reikna grunnorkuþörf, heildarorkuþörf, próteinþörf og líkamsþyngdarstuðul


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja þekkingu sína á líkamsstarfseminni og þörfum líkamans á næringu við líðan og árangur í daglegu lífi, starfi, skóla og íþróttum
  • geta rökstutt eigin ráðleggingar varðandi mataræði til skjólstæðinga sinna m.t.t. þarfa og markmiða skjólstæðingsins
  • útskýra hvað má betur fara varðandi næringu skjólstæðinga út frá útreikningum á orkuþörf og samsetningu fæðunnar
  • að taka þátt í gagnrýnum umræðum um tískustrauma og markaðssetningu, kosti og ókosti einstakrar fæðu, fæðubótarefna og árangursaukandi efna
  • afla sér vísindalegra heimilda um árangursaukandi efni og skoða hvaða efni mæta kröfum um gæði og virkni