MLSU2VB03(BV) - Málmsuða 2

Undanfari : MLSU1VA03(AV)
Í boði : Haust

Lýsing

Markmið þessa áfanga er að breikka þekkingargrunn nemenda og auka færni þeirra á sviði málmsuðu, einkum er varðar beitingu hlífðargass við suðu á mismunandi tegundum málma. Nemendur skulu öðlast þjálfun í suðu með hlífðargasi (argon, blandgas) á járni og öðrum málmum (ryðfríu stáli og áli). 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • suðu með hlífðargasi
  • argon- og blandgasi á stáli, ryðfríu stáli og áli með TIG, MIG og MAG suðutækjum
  • MIG-MAG suðu á beinum fleti, lóðrétt-stígandi og lóðrétt-fallandi kverksuðu og uppundirsuðu
  • TIG-suðu í kverk á tveimur ryðfríum plötum
  • TIG-suðu á ryðfríum prófíl
  • TIG-suðu á svörtum rörum
  • skurði á ýmsum málmum með plasmaskurðarvélum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • rafsjóða í ýmsum suðustellingum með MIG-MAG rafsuðutækjum
  • rafsjóða ál, svart og ryðfrítt stál með TIG-suðu
  • skera málma með plasmavélum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta við hvaða aðstæður henti að beita MIG-MAG eða TIG-suðu
  • meta hvaða forsendur þurfi að vera til staðar til þess að MIG-MAG eða TIG suður henti við samtengingar
  • meta hvaða tæki og búnaður þarf að vera til staðar við plasmaskurð og hvenær henti að beita plasmaskurði