MLSU1VA03(AV) - Málmsuða 1
Undanfari : ?Óákveðið
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur skulu í þessum áfanga öðlast nægilega þjálfun og færni í notkun og meðferð logsuðu-, logskurðar- og rafsuðutækja svo þeir geti með fullnægjandi hætti beitt þessum tækjum á faglegan hátt. Í áfanganum skulu gerðar verklegar æfingar í lóðrétt-stígandi og lóðrétt-fallandi hliðarsuðu og uppundirsuðu með rafsuðu. Einnig þjálfast nemendur í logsuðu, logskurði og lóðun með slaglóð og tini.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- notkun acetylen-gass og súrefnis til málmsuðu og logskurðar
- meðferð gashylkja, lit þeirra og mælibúnaði
- nauðsyn góðrar loftræstingar og þrifnaðar við málmsuðu
- eðlisfræðilegum þáttum við logsuðu svo sem hitastigi í loga og áhrifum loga á suðupoll
- stöðlum um hæfismat og um mat á suðum og suðugöllum
- suðuferilslýsingum vegna rafsuðu og gildi þeirra
- flokkun og stöðlun á húðun rafsuðuvíra og eiginleikum, notkun og meðferð basískra rafsuðuvíra
- helstu gerðum rafsuðuvéla, afköstum þeirra, notkunarsviði og stillingum
- helstu gerðum suðuraufa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- rafsjóða eftir suðuferilslýsingum
- rafsjóða lóðrétt-stígandi og lóðréttfallandi hliðarsuðu og uppundirsuðu með rafsuðutækjum
- setja upp mæla, hylki og slöngur fyrir logsuðu
- stilla réttan vinnuþrýsting og velja réttan suðuspíss samkvæmt efnisþykkt
- beita logsuðutækjum við logsuðu á þunnplötum og rörum ,koparsuða og silfurkveiking
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta spennur sem myndast við rafsuðu og hvernig skuli bregðast við þeim
- tryggja að kröfum um A-mál rafsuðu sé fullnægt
- logskera stál og framkvæma sjónmat samkvæmt staðli (IST EN 25 817)
- nota acetylen-gass og súrefni til málmsuðu,lóðun og logskurðar
- rafsjóða eftir suðuferilslýsingum
- vinna með suðustaðla
- velja rafsuðuvír með tilliti til efnis, suðuraufar og aðstæðna
- sjóða með fullnægjandi hætti samkvæmt stöðlum