MLSU1PL03 - Málm- og plastsuða
Undanfari : Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum læra nemendur logsuðu og kynnast rafsuðu og hlífðargassuðu. Einnig læra þeir að lóða eirrör með mismunandi blöndum, fá þjálfun í að spegil- og múffusjóða plaströr og tengja plaströr með rafsuðumúffum. Lögð er áhersla á meðferð logsuðutækja og öryggisreglur þar að lútandi. Kennslan er aðallega verkleg.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- rafsuðuvélum og stillingu suðustraums
- vírum sem notaðir eru við rafsuðu og hlífðargassuðu
- grunnreglum fyrir lóðningu með silfri, tini og fosfórblöndu
- grunnreglum fyrir suðu og límingu plaströra
- umgengni og öryggisreglum varðandi gashylki og suðutæki
- sprengihættu sem stafar af gasi og súrefni
- nauðsyn brunavarna við suðuvinnu málma
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja upp hylki, slöngur og sköft
- stilla réttan vinnuþrýsting
- velja suðuspíssa út frá efnisþykkt
- sjóða 1-3 mm plötur og rör í suðustöðum PA og PC
- lóða eirlagnir með silfur/tinblöndum eða forfórslaglóði
- spegil- og múffusjóða og líma plaströr
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- logsjóða plötur og rör
- lóða eirrör með mismunandi blöndum
- plastsjóða og líma plaströr
- beita reglum um meðferð gass, súrefniskúta og logsuðutækja
- meta og bregðast við nauðsyn brunavarna við suðuvinnu málma