MEÐF2SI05 - Meðferðarfræði fóta 2

Undanfari : Meðferðafræði fóta 1 og Spangartækni 1
Í boði : Haust

Lýsing

Áfanginn er verklegur. Nemendur læra að beita mismunandi aðferðum við að meðhöndla og fjarlægja sigg, líkþorn og vörtur. Farið er í ráðgjöf og gerð grein fyrir mikilvægi forvarna.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi forvarna.
  • mismundandi aðferðum við meðhöndlun á siggi, líkþornum og vörtum.


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • meðhöndla sigg, líkþorn og vörtur.
  • beita réttum verkfærum, tækjum og efnum við meðhöndlun á siggi, líkþornum og vörtum.
  • skrá sjúkraskýrslur og nota táknfræði til greiningar.
  • útskýra mikilvægi forvarna.


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • öðlast færni í lið- og vöðvaprófum.
  • veita ráðgjöf við meðferð og forvörnum við siggi, líkþornum og vörtum.