MÆLG3MÆ05 - Mælingar og greiningar
Undanfari : Vöðva- og hreyfifræði 1 og 2
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í þessum áfanga er fjallað um ýmsar líkamsgerðarmælingar s.s. hæðar-, þyngdar- og ummálsmælingar sem og mat á líkamssamsetningu. Einnig er farið í greiningar á líkamsstöðu og hreyfigetu liða. Farið verður í mikilvægi áreiðanleika og gildi mælinga og hvernig ytri og innri þættir viðfangsefnisins hafa áhrif á niðurstöður. Kenndar eru helstu þol-, liðleika, og styrktarmælingar sem notaðar eru á starfsvettvangi einka- og styrktarþjálfara. Farið er í framkvæmd heilsufarsmats m.t.t. heilsufarssögu og félagssögu. Einnig er farið í notkun ýmissa mælitækja s.s. húðfellingatanga, rafviðnámsmæla, blóðþrýstingsmæla og ummálsmæla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökunum "gildi" (validity) og "áreiðanleika" (reliability) mælinga og greininga
- tilgangi mælinga og greininga
- þeim ytri og innri þáttum sem geta haft áhrif á niðurstöður mælinga og greininga
- helstu mælingum og greiningum sem framkvæmdar eru á starfsvettvangi einka- og styrktarþjálfara og viðeigandi tækjabúnaði
- réttri líkamsstöðu og eðlilegri hreyfigetu liða
- helstu aðferðum við þol-, liðleika og styrktarmælingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skrá niðurstöður mælinga og greininga
- framkvæma þær mælingar og greiningar, af nákvæmni og áreiðanleika, sem einka- og styrktarþjálfarar nota til að meta líkamsástand skjólstæðinga sinna
- draga saman niðurstöður mælinga og greininga og miðla til skjólstæðinga sinna
- nota viðeigandi tækjabúnað til mælinga og greininga
- framkvæma heilsufarsmat
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rökstyðja hvaða mælingar og greiningar skal nota hverju sinni samkvæmt niðurstöðum heilsufarsmats og markmiðum hvers skjólstæðings
- gera sér grein fyrir mikilvægi mælinga og greininga við gerð þjálfunaráætlana
- tengja niðurstöður greininga og mælinga við gerð þjálfunaráætlana
- sýna nærgætni og skilning við framkvæmd og miðlun á niðurstöðum mælinga og greininga
- afla sér nýjustu upplýsinga um mælingar og greiningar