LYFJ2LS05 - Lyfjafræði á sjúkraliðabraut
Undanfari : LÍOL2IL05 og SJÚK2GH05
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum er farið í lyfjaskrár, ATC-flokkunarkerfi lyfja, geymslu og fyrningu lyfja, lyfjaform og ýmsar skilgreiningar sem tengjast lyfjum. Farið er í helstu lyf sem notuð eru við hjarta- og æðsjúkdómum, geðsjúkdómum, stoðkerfissjúkdómum, öndunarfærasjúkdómum, húðsjúkdómum og sykursýki. Auk þess er fjallað um sýklalyf, meltingarfæralyf og lyf við Alzheimer sjúkdómi. Fjallað er um lyf og lyfjaflokka, verkun lyfjanna, aukaverkanir, milliverkanir o.fl.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbyggingu sérlyfjaskrár
- ATC-flokkunarkerfi lyfja
- ýmsum algengum skilgreiningum sem tengjast lyfjum
- hugtökum sem notuð eru varðandi frásog, dreifingu, umbrot og útskilnað lyfja
- helstu lyfjaformum, kostum þeirra og göllum
- áhrifum hjarta- og æðasjúkdómalyfja, geðlyfja, verkjalyfja, öndunarfæralyfja, húðlyfja og sykursýkislyfja
- helstu flokkum og áhrifum sýklalyfja, meltingarfæralyfja og lyfja við Alzheimer sjúkdómi
- helstu auka- og milliverkunum ofangreindra lyfja
- blóðþéttnikúrfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leita að upplýsingum um lyf á netinu
- flokka sérlyf eftir ATC-flokkunarkerfinu
- reikna út helmingunartíma lyfja
- aðstoða skjólstæðinga við notkun á ýmsum lyfjaformum, þar sem við á
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- miðla algengum upplýsingum um ofangreind lyf til skjólstæðinga þar sem við á
- átta sig á tengslum aukaverkana lyfja við verkun þeirra
- sýna skilning á verkun ofangreindra lyfja með tilliti til verkunarmáta þeirra