LÝÐH1ST02 - Lýðheilsa - Með áherslu á stöðvaþjálfun (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur gera ýmsar æfingar á stöðvum sem auka líkamlegan styrk, þol og liðleika þeirra.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að fara ekki of geyst af stað
  • að ýmsar hættur geta leynst í tækjasal
  • að hreyfing er holl og góð fyrir líkamann

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að nota fjölbreytt líkamsræktartæki
  • að gera fjölbreyttar æfingar
  • að bæta líkamlegt ástand

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér styrktarþjálfun sem valkost í hreyfingu
  • bæta líkamasástand sitt
  • sækja tíma í líkamsræktarstöðvum og nýta sér þjónustu

Áfangi á starfsbraut