LÝÐH1SK02 - Lýðheilsa - Með áherslu á skák (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur læra mannganginn og nokkur grunnatriði í skák.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að skák getur verið skemmtilegt tómstundagaman
  • skák reynir á rökhugsun og styður við annað nám
  • hugtökum sem tekjast skákíþróttinni

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að vita hvernig taflmenn hreyfast
  • að nota skákklukku
  • að tefla eftir áætlun

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tefla við aðra
  • nota skákforrit
  • taka þátt í starfi með skákfélagi

Áfangi á starfsbraut