LÝÐH1ÍÚ02 - Lýðheilsa - Með áherslu á útivist og hreyfingu (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum er verið að kynna nemendur fyrir útivist, fjölbreyttum gönguleiðum, hreyfingu og útbúnaði sem mikilvægur er í stuttar göngur. Áfanginn er verklegur og fer fram á skólatíma.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvæg góðrar heilsu fyrir framtíðina
  • hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
  • mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
  • nýta snjalltækni til að kortleggja útivistina

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
  • viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu

Áfangi á starfsbraut