LÝÐH1HF05 - Lýðheilsa - Heilbrigður lífsstíll
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Áfanginn fer fram í formi hópeflis, fyrirlestra og umræðna. Lögð verða fyrir einstaklings- og hópverkefni. Áhersla er lögð á að efla heilsu og mannkosti nemenda með því að fjalla um heilbrigðan lífsstíl og forvarnir. Rætt verður um ýmislegt sem mikilvægt er að þekkja, svo lífsgæði nemandans verði sem best í framtíðinni. Umfjöllunarefnin eru m.a. andleg-, líkamleg- og félagsleg heilsa, svefn, streita, kynfræðsla, fíkn, sjálfsábyrgð, sjálfstraust, núvitund, fjármálalæsi, húmor, sorg, gleði, vinátta, tilfinningar og stafræn borgaravitund. Unnið er með samskipti, virðingu, fordóma og mikilvægi réttlætis.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvað felst í hugtökunum heilsa, heilbrigði og forvarnir
- mikilvægi hreyfingar og góðrar næringar
- mikilvægi góðs sjálfstrausts, tjáningar og samskiptahæfni
- hvað er kynheilbrigði og mikilvægi þess bera virðingu fyrir eigin líkama
- skaðsemi reykinga, áfengis og vímuefna á líkamlega, andlega og félagslega heilsu
- hvernig umhverfið og nærsamfélagið hefur áhrif á lífsgæði fólks
- streitu, streituvöldum og streitulosandi aðferðum
- núvitund og geðrækt
- jafnréttishugtökum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða og meta eigin heilsu,heilbrigði og velferð
- beita líkamanum rétt og þekkja leiðir til að auka úthald sitt, styrk og liðleika
- velja góða næringu sem eflir líkamann
- að nýta sér fræðsluefni og rannsóknir til þess að viðhalda og/eða bæta eigin heilsu
- efla félagsþroska sinn og eiga árangursrík samskipti við aðra óháð kyni, litarhætti, trúarbrögðum, kynhegðun, efnahag eða búsetu
- sýna samkennd og tillitsemi
- beita gagnrýnni hugsun og tjá eigin skoðanir
- taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði
- framkvæma streitulosandi æfingar
- forgangsraða – setja heilsuna í fyrsta sæti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta heilsulæsi sitt til að efla og viðhalda góðri líkamlegri,andlegri og félagslegri heilsu
- bera ábyrgð á sjálfum sér og auka sjálfstæði sitt
- vera meðvitaður um eigin styrkleika
- láta skoðanir sínar í ljós og hlusta á sjónarmið annarra
- geta valið leiðir sem liggja í átt að góðri heilsu
- vinna að forvörnum og heilsueflingu
- eiga í árangursríkum samskiptum við aðra, geta til að mynda borið virðingu og umhyggju fyrir öðrum óháð kyni, litarhætti, trúarbrögðum, kynhegðun, efnahag og búsetu
- skipuleggja fjármál sín af ábyrgð og hagsýni