LÝÐH1GV02 - Lýðheilsa - Með áherslu á grunnþjálfun (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur gera ákveðnar æfingar til að koma í veg fyrir kreppur eða aflaganir og til þess að styrkja líkama.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi þess að stunda æfingar
- að vellíðan getur fylgt æfingum
- að hægt er að njóta æfinga
- að æfingar geta komið í veg fyrir kreppur og aflaganir
- að líkaminn styrkist við að stunda æfingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að framkvæma teygjuæfingar
- að ganga sér til heilsubótar
- æfingum í vatni
- að auka stöðutíma í standbekk
- að gera æfingar í stöðvaþjálfun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í æfingum sem henta eða benda á hvaða æfingar henta honum
- fjölga tækifærum til að nýta sér ýmis tilboð á sviði hreyfingar svo sem sund, gönguferðir og stöðvaþjálfun
Áfangi á starfsbraut