LÝÐH1DS02 - Lýðheilsa - Með áherslu á dans og sköpun (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur fá tækifæri til að hafa áhrif á dansstíla og virkja eigin sköpunarkraft í gegnum dans og hreyfingu. Farið er yfir nokkur grunnspor í dansi.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • tilgangi danslistarinnar sem ákveðnu tjáningarformi
  • nokkrum grunnsporum í dansi

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að tjá sig með hreyfingu
  • grunnsporum í dansi
  • að dansa ákveðinn dans eða dansa
  • tjáningu

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta dansað einn og sér eða með öðrum
  • taka þátt í tómstundastarfi sem byggist á dansi
  • geta tjáð sig í gegnum hreyfingu

Áfangi á starfsbraut