LSTR1TN03 - Listir - Tónlist með áherslu á Norðurlönd (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um tónlist frá Norðurlöndunum í víðu samhengi og leitast við að skoða og kynna tónskáld á sviði sígildar tónlistar og/eða tónlistar sem hafa notið vinsælda í nútímanum og/eða siðastliðin ár.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvaða lönd tilheyra Norðurlöndum
  • að þjóðleg tónlist á Norðurlöndunum er fjölbreytt
  • einu eða fleiri tónskáldum frá Norðurlöndum

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að þekkja tónlist og tónverk frá viðkomandi landi
  • að þekkja tónskáld frá viðkomandi landi
  • að geta tengt tónverk við höfund

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina áhugasvið sín varðandi tónlist frá Norðurlöndum
  • tjá öðrum áhugasvið sín varðandi tónlist frá löndunum
  • geta hlustað fordómalaust á ýmis tóndæmi
  • taka þátt í umræðum og mynda og/eða segja skoðun sína á þeim

Áfangi á starfsbraut