LSTR1TH03 - Listir - Tónlist með áherslu á framandi tónlist (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað er um mjög ólíka tónlist frá ólíkum heimsálfum. Farið verður yfir tónlist frumbyggja ýmissa landa, mismunandi hljóðfæri, tónlistarhefð og þekkt nöfn á sviði tónlistar tengt þessum löndum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að tónlist getur verið mjög ólík milli landa eða álfa
- tónskáldum frá þeim löndum sem kynnt voru
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að þekkja tónlist og tónverk frá viðkomandi landi
- að þekkja tónskáld frá viðkomandi landi
- geta tengt tónverk við höfund
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina áhugasvið sitt varðandi framandi tónlist
- geta tjáð öðrum áhuga sinn varðandi tónlist frá löndunum
- geta hlustað fordómalaust á ýmis tóndæmi
- taka þátt í umræðum, mynda og tjá skoðun sína á þeim
Áfangi á starfsbraut