LSTR1SU02 - Listir - Með áherslu á stuttmynd (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Lokamarkmið áfangans er að gera stuttmynd. Fjallað verður um uppbyggingu handrita og handritsgerðar fyrir stuttmyndir. Nemendur fá leiðsögn um myndatöku, hljóðupptöku, leikmynd, búninga og klippivinnu.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtakinu stuttmynd
  • ferli við gerð stuttmyndar
  • tæknivinnu að baki stuttmynd
  • handritsgerð

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að skrifa handrit
  • að meðhöndla stafræna tökuvél, myndavél eða spjaldtölvur
  • að ná tökum á klippiforriti
  • að gera stuttmynd

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna í teymi
  • átta sig á mikilvægi skipulagðra vinnubragða
  • gera sér grein fyrir mikilvægi skapandi hugsunar
  • tjá sig í gegnum stuttmynd
  • vinna stuttmynd

Áfangi á starfsbraut