LSTR1ST03 - Listir - Tónlist með áherslu á sígild tónskáld (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um ýmis sígild tónskáld frá 18. öld og að fyrri hluta 20. aldar.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvað felst í hugtakinu sígild tónlist
  • fjölbreytileika hljóðfæra í sígildri tónlist
  • uppbyggingu mismunandi hljómsveita

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að þekkja ýmis hljóðfæri sem notuð eru í sígildri tónlist
  • að geta nefnt nokkur sígild tónskáld
  • að geta nefnt nokkur sígild tónverk
  • að geta tengt tónverk við höfund

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina áhugasvið sín varðandi sígilda tónlist
  • geta tjáð öðrum áhugasvið sín varðandi sígilda tónlist
  • geta hlustað fordómalaust á ýmis tóndæmi, og myndað og sagt skoðun sína á þeim
  • taka þátt í umræðum um sígilda tónlist

Áfangi á starfsbraut