LSTR1SK03 - Listir - Tónlist með áherslu á sköpun (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um ýmis hljóðfæri í máli og myndum. Skoðuð verða fjölbreytt hljóðfæri. Æfður verður ásláttur, taktur og hrynjandi, grip og hljómar. Þekkt sönglög verða valin og sungin og nemendur skapa eigið lag sungið eða leikið.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi hljóðfærum
  • mismunandi notkun hljóðfæra
  • þekktum sönglögum

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að spila á hljóðfæri
  • að búa til hljóðfæri
  • að syngja eða tjá sig í lagi
  • að búa til lag
  • að finna áhugasvið innan tónlistar

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta greint flokka hljóðfæra
  • hlusta á aðra og tjá sig um verk þeirra fordómalaust

Áfangi á starfsbraut