LSTR1LL03 - Listir - Með áherslu á leiklist (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum þjálfast nemendur í undirstöðuatriðum leiklistar svo sem í framsögn, tjáningu, þ.e. að sviðsetja verk. Hægt er að tengja námið við vettvang og fara í leikhús.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi tjáningar
  • mikilvægi framsagnar
  • mikilvægi þess að læra texta
  • að til eru aðal- og aukaleikarar

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að nýta sér upphitunar-, radd- og slökunaræfingar
  • að beita rödd sinni á mismunandi hátt
  • að tjá sig frjálst eða eftir leikstjórn

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • þekkja mismunandi gerðir leiklistar
  • fara í leikhús og leggja sjálfstætt mat á verkið
  • að leika á sannfærandi hátt

Áfangi á starfsbraut