LISA3ÍS05 - Listasaga - Íslensk myndlistarsaga

Undanfari : LISA2RA05 og LISA3NÚ
Í boði : Alltaf

Lýsing

Í áfanganum er farið yfir helstu stílbrigði sjónlista á Íslandi frá landnámi og fram á 20. öld í samhengi við þróun evrópskrar listasögu og tengsl listarinnar við þjóðfélagslegar forsendur á hverjum tíma. Farið er í gegnum helstu stíleinkenni og stefnur í tengslum við tíðaranda hvers tímabils og tæknilegar, félagslegar og landfræðilegar forsendur íslenskrar listsköpunar fyrr og nú rannsakaðar. Áhersla er lögð á að nemandinn nýti sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit og framsetningu verkefna.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu stíleinkennum í íslenskri myndlistarsögu
  • verkum og hugmyndum helstu listamanna í íslenskri myndlistarsögu
  • gildi þekkingar á íslenskri listasögu í alþjóðlegu samhengi
  • hvernig samfélagsgerð, landfræðileg staða, veðurfar og tíðarandi hefur áhrif á hugmyndir, viðfangsefni og vinnuaðferðir myndlistarmanna

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna á skapandi hátt í einstaklings- og hópverkefnum áfangans og sýna frumkvæði
  • taka þátt í samvinnu, upplýsingaöflun og samræðum í kennslustundum með sameiginlegt markmið hópsins að leiðarljósi
  • beita innsæi, tilfinningu og sjálfstæðum vinnubrögðum við útfærslu verkefna
  • beita faglegum hugtökum til að tjá sig um þekkingu sína á stíleinkennum, stílbrögðum og túlkunarleiðum í íslenskri listasögu

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig um strauma og stefnur í íslenskri myndlistarsögu og miðla þekkingu sinni á skýran og gagnrýninn hátt
  • gera þekkingu sinni skil með margvíslegum hætti, skriflega, munnlega og með nýmiðlun
  • taka þátt í uppbyggilegri og frjórri samræðu um verkefni sín og annarra
  • ígrunda og rökstyðja mál sitt
  • beita faglegum hugtökum til að tjá sig um þekkingu sína á stíleinkennum, stílbrögðum og túlkunarleiðum í íslenskri listasögu