LÍOL2IL05 - Líffæra og lífeðlisfræði 2
Undanfari : LÍOL2SS05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum er farið í helstu grunndvallaratriði í líffæra- og lífeðlisfræði mannslíkamans. Fjallað er um hringrásarkerfið, samsetningu blóðs, byggingu og starfssemi hjartans og varnarkerfi líkamans. Bygging og hlutverk öndunarfæranna og stjórn öndunnar er skoðuð. Einnig er fjallað um byggingu og hlutverk meltingarkerfis, þvagfærakerfis og æxlunarkerfis.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- byggingu, starfsemi og hlutverkum hringrásar-, vessa-, meltingar-, öndunar-, þvagfæra- og æxlunarkerfis
- eðliseinkennum blóðs og hlutverki þess í líkamanum
- megingerðum blóðfrumna, einkennum þeirra, hlutverki og myndunarstað
- byggingu hjartans og eðli hjartsláttar
- þeim þáttum sem ákvarða og stjórna blóðþrýstingi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- rekja blóðstreymið um hjartað
- fylgja eftir flæði vessa um kerfið
- rekja leið innönundarloftsins og lýsa stjórn öndunar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra leiðir blóðs um líkamann
- útskýra ferli inn- og útöndunar
- útskýra frjóvgun og fyrstu daga fósturþroskans