LÍFS1UM05 - Lífsleikni - Með áherslu á umferli (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um nemendasvæði í skólanum, merkingar og táknmyndir, reglur á gönguleiðum og reglur varðandi almenna umferð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ákveðnum svæðum í skólanum og hlutverki þeirra
- að skilaboð felast í merkingum
- ýmsum reglum varðandi umferli
- að nýta sér bókasafn, mötuneyti, salerni og félagsaðstöðu
- að þekkja ákveðnar táknmyndir og vita fyrir hvað þær standa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að fylgja hópi í gönguferð
- að ganga ákveðna vegalengd
- að nota almennar samgöngur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sækja ákveðna staði innan skólans og nýta sér þjónustu þeirra
- skilja merkingar og táknmyndir í sem víðustu samhengi og tileinka sér skilaboð þeirra
- fara eftir almennum umferðarreglum
Áfangi á starfsbraut