LÍFS1SB05 - Lífsleikni - Með áherslu á sjálfbærni í víðu samhengi (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á sjálfbærni og undirbúning fyrir fullorðinsárin. Farið verður yfir fjölbreytta sýn á aðstæður og umhverfi ungs fólks í dag og hvernig hugtakið sjálfbærni kemur fyrir í daglegu lífi. Áhersla er á að námið verði sjálfbært í þeirri merkingu að það eigi eftir að nýtast nemendum í framtíðinni og færa þá nær raunveruleika lífsins í gegnum fræðslu og umfjöllun/upplifun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtakinu sjálfbærni
- hugtökum sem snerta umhverfismál og umhverfisvitund
- að sérstaða manna meðal lífvera er margvísleg
- fjölbreytileika lífs
- mismunandi samskiptareglum
- mikilvægi tjáningar og hlustunar
- ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða eigin neysluvenjur og áhrif þeirra á eigin velferð og umhverfi
- nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt
- átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
- taka þátt í umræðum
- afla sér upplýsinga um lýðheilsu
- nýta sér reynslu annarra til að takast á við sambærilegar aðstæður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu sjálfbærni
- virða fjölbreytileika náttúru, umhverfis og fólks
- þekkja styrkleika sína og nýta þá á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
Áfangi á starfsbraut