LÍFS1LK05 - Lífsleikni - Með áherslu á líkamann og tilfinningar (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um tilfinningar og almenna líðan. Einnig heiti ýmissa líkamshluta og hvaða hlutverki þeir gegna. Rætt er um að líkami sé einkaeign sérhvers einstaklings.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • líkamanum og starfsemi hans
  • mismunandi tilfinningum

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að skilja eigin tilfinningar
  • að hemja tilfinningar ef þær verða yfirdrifnar
  • að virða tilfinningar annarra
  • að þekkja líkama sinn, starfsemi og vita hvaða hlutverki helstu líkamshlutar gegna
  • að vera meðvitaður umað hann ráði yfir líkama sínum
  • að þekkja einkasvæði
  • að kunna að setja mörk

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta stjórnað tilfinningum sínum á sem bestan hátt
  • virða tilfinningar annarra
  • tileinka sér lífsstíl sem stuðlar að góðri heilsu og líkamlegum framförum

Áfangi á starfsbraut