LÍFS1KF05 - Lífsleikni - Með áherslu á kynfræðslu (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á kynfræðslu í þeim tilgangi að nemendur viti hvað felst í kynheilbrigði og að þeir öðlist jákvæðan skilning á kynlífi og öðlist hæfni til að viðhalda eigin kynheilbrigði. Stuðlað verður að því að nemendur læri að taka ábyrgar ákvarðanir á líðandi stundu og í framtíðinni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vexti og þroska líkamans
- hugtökum um líkamshluta og kynlíf
- að sjónarhorn allra er jafn mikilvægt
- mikilvægi kynheilbrigðis
- algengum kynsjúkdómum og getnaðarvörnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- íhuga og kanna eigið viðhorf til kynlífs
- tjá skoðanir sínar
- þekkja eigin líkama
- eiga viðeigandi samskipti, sem einkennast af virðingu, við einstaklinga af báðum kynjum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt
- spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- auka sjálfstæði sitt og trú á sjálfum sér
- láta skoðanir sínar í ljós
- vera meðvitaður um að kynferðisleg tjáning getur verið mismunandi
Áfangi á starfsbraut