LÍFS1FH05 - Lífsleikni - Með áherslu framkomu og hreinlæti (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um viðeigandi framkomu og snyrtimennsku til að nemanda líði sem best í daglegu lífi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að viðeigandi framkoma og snyrtimennska leiðir til fleiri tækifæra til dæmis varðandi vinsældir í hópi
- að viðeigandi framkoma og snyrtimennska veitir meiri líkur á tækifærum á sviði tómstunda, náms og vinnu
- að hreinlæti er nauðsynlegt
- að skortur á hreinlæti getur valdið sjúkdómum, vondri lykt eða öðrum óþægilegum kvillum
- að viðeigandi klæðnaður er mikilvægur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að kynna sig
- að heilsa á viðeigandi hátt
- að svara þegar á hann er yrt
- að bíða eftir að röðin komi að honum
- að hagræða fötum og velja viðeigandi klæðnað
- að nota viðeigandi snyrtivörur
- að nota tannbursta og tannkrem
- að þvo hendur og líkama
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- temja sér viðeigandi framkomu
- sinna eigin hreinlæti
- vita hvað klæðnaður hentar hverju sinni
Áfangi á starfsbraut