LÍFF2LÍ05 - Líffræði - Lífeðlisfræði

Undanfari : LÍFF2GR05
Í boði : Haust

Lýsing

Áfanginn fjallar um lífeðlisfræði lífvera. Fjallað verður um vefi, líffæri og líffærakerfi mannsins en samanburður einnig gerður við aðrar lífverur. Farið verður yfir byggingu og starfsemi innkirtla, helstu skynfæra, blóðrásarkerfis, vessa- og ónæmiskerfis, meltingarkerfis, stoðkerfis, taugakerfis, þvagkerfis, öndunarkerfis og æxlunarkerfis. Fjallað verður um efnaskipti og líkamshita, byggingu og hlutverk húðar. Rætt verður um heilbrigða starfsemi líkamans og algengustu frávik. Nemendur kynnast námsefninu á sem fjölbreyttastan hátt með verklegum æfingum og fjölbreyttum verkefnum.

 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • starfsemi innkirtlakerfis og virkni helstu hormóna.
  • mismunandi gerðum skynnema og skynfæra.
  • blóðrás, uppbyggingu og hlutverki blóðs, starfsemi hjartans.
  • byggingu og virkni meltingarkerfis.
  • stoðkerfi og eðli hreyfingar.
  • starfsemi og skiptingu taugakerfis.
  • úrgangslosun og efnastjórn.
  • öndunarkerfi og stjórnun þess.
  • stjórnun líkamshita og orkumyndun líkamans.
  • byggingu húðar og þátt í hitatemprun.
  • æxlun.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta lífeðlisfræðilegar upplýsingar í máli og myndum.
  • meta viðbrögð líkamans við mismunandi umhverfisaðstæðum.
  • bera saman mismunandi vefi og líffæri.
  • greina frá heilbrigðri starfsemi líffæra og líffærakerfa.
  • nota smásjá til þess að skoða frumur og vefi.
  • kryfja líffæri úr spendýri.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • þekkja einkenni algengra sjúkdóma og vita hvernig eigi að bregðast á við, t.d. ef einstaklingur lendir í hjartastoppi.
  • geta tjáð sig munnlega og skriflega um starfsemi líkamans.
  • draga ályktanir af mælingum og tilraunum á líkamsstarfsemi.
  • nýta og meta heimildir til þess að leysa verkefni.
  • tengja mikilvægi hreyfingar við starfsemi t.d. vöðvakerfis, stoðkerfis og taugakerfis.
  • meta áhrif ýmissa efna á líkamsstarfsemina t.d. hvað gerist í líkamanum við inntöku kolvetna.
  • taka ábyrgð á eigin lífsháttum og heilsu.