LÍFF2GR05 - Líffræði - Almenn líffræði
Undanfari : Enginn á raunv.braut en NÁTT1GR05 á öðrum brautum
Í boði
: Haust
Lýsing
Í þessum áfanga er gerð grein fyrir helstu grunnhugtökum og viðfangsefnum líffræðinnar, fjölbreytileika hennar og tengslum við aðrar fræðigreinar. Uppbygging og fjölbreytni lífheimsins er skoðuð. Fjallað er um byggingu og hlutverk lífrænna efna, frumna og vefja. Farið er yfir grundvallarþætti erfðafræði og þróunarfræði. Gerð og starfsemi vistkerfa er skoðuð og leitast er við að nota líffræðileg dæmi úr nærumhverfi nemenda eftir því sem við verður komið.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum líffræðinnar og tengslum hennar við aðrar greinar.
- helstu efnaflokkum lífvera og hlutverkum þeirra.
- gerð og starfsemi frumna.
- helstu lögmálum erfðafræði og þróunarfræði.
- helstu einkennum lífvera.
- uppbyggingu og skipulagsstigum lífvera.
- flokkunarfræði lífvera og fjölbreytileika þeirra.
- grundvallaratriðum vistfræðinnar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota algeng rannsóknatæki eins og t.d. smásjár eða víðsjár.
- vinna sjálfstætt við framkvæmd verklegra æfinga og geta útskýrt niðurstöður.
- lesa líffræðilegar upplýsingar úr máli og myndum.
- átta sig á einföldum erfðamynstrum.
- lesa í tengsl milli lífvera í umhverfinu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auka skilning sinn á fyrirbærum náttúru- og raunvísinda.
- leggja gróft mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu á gagnrýninn hátt.
- afla sér frekari þekkingar á líffræðilegum viðfangsefnum.
- sýna sjálfstæði við að miðla niðurstöðum úr verklegum æfingum og geta útskýrt og dregið ályktun af niðurstöðunum.
- geta tengt saman efnisþætti við úrlausn viðfangsefna.
- beita skipulegum aðferðum og skráningu við úrlausnir verkefna.