LAND1NL03 - Landafræði - Með áherslu á Norðurlönd (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um staðsetningu Norðurlanda á jarðarhvelinu, höfuðborgir, móðurmál og áhugaverða staði.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Norðurlöndunum
  • höfuðborgum
  • móðurmáli sérhvers lands

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að geta bent á Norðurlönd á hnattlíkani eða í kortabók
  • að geta sagt frá nokkrum þekktum stöðum á Norðulöndum
  • nefna höfuðborgir þeirra
  • að þekkja blæbrigði milli móðurmála

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í umræðum um Norðurlöndin
  • beita þekkingu sinni og fróðleik í umræðum

Áfangi á starfsbraut