LAND1HÁ03 - Landafræði - Með áherslu á heimsálfurnar (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um heimsálfur og helstu lönd sem tilheyra þeim. Menning þeirra og saga verður skoðuð og borin saman.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvernig heimurinn skiptist í heimsálfur
  • fjölbreytileika þeirra

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að þekkja heimsálfurnar
  • að tengja saman lönd og heimsálfur
  • að lesa á landakort
  • að afla sér upplýsinga um lönd og geta miðlað upplýsingum um þau

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í umræðum um heimsálfur
  • miðla fróðleik til annarra

Áfangi á starfsbraut