KNAT2AA05 - Knattspyrna 2 - Afreksíþróttalína
Undanfari : ?Óákveðið
Í boði
: Haust
Lýsing
Áhersla er lögð á einstaklinginn til að auka færni hans í knattspyrnu. Æft er með álagi afreksíþróttamanns með miklum og vel skipulögðum æfingum. Fróðleikur í formi fyrirlestra til að fræða íþróttamanninn og gera hann betur í stakk búinn til þess að ná árangri í íþróttinni. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- leikfræðum íþróttarinnar
- tækniatriðum íþróttarinnar
- grunnreglum íþróttarinnar
- mikilvægi aga og ábyrgðar afreksíþróttamanns til að ná árangri í íþróttinni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leika knattspyrnu
- framkvæma helstu tækniþætti í greininni
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- bæta sig sem knattspyrnumaður
- auka tæknilega færni í íþróttinni
- bæta líkamlegt ástand til að standast þær kröfur sem íþróttin gerir
- tileinka sér lífsstíl í samræmi við kröfur afreksíþróttamanna
- setja sér raunhæf markmið á sviði allra þátta er tengjast íþróttinni