KÆLI2VA05(AV) - Kælitækni 1

Undanfari : ?RAF1136, RAMV1VA04(AV) og STÆR2AH05
Í boði : Haust

Lýsing

Nemendur öðlast þekkingu á undirstöðuatriðum varmafræðinnar, á uppbyggingu kælikerfa, þeim einingum sem mynda kælikerfi og hlutverkum hinna einstöku þátta þeirra. Fjallað er um mælieiningar í kælitæki, varmaflutning (leiðni, ferjun og geislun), eðlisvarma efna, ástandsbreytingar efna, helstu hugtök kælitækninnar, hx- og log ph-línurita og notkun þeirra í kælitækni. Nemendur kynnast mismunandi tegundum og eiginleikum kælimiðla, s.s. vatns, ammoníaks, kolsýru, vetniskolefnis (própan og ísobútan), klórflúorkolefnis, vetnisklórflúorkolefnis, og vetnisflúorkolefnis. Fjallað er um takmarkanir og notkunargildi þessara kælimiðla og umhverfisáhrif þeirra. Fjallað er nánar um hringferil kælikerfis með aðstoð log ph-línurita og gerðir útreikningar með tilliti til yfirhitunar, undirkælingar og þjöppunar kælimiðils. Einnig er fjallað um þrýstifall í lögnum, stærð og afköst varmaskipta. Afköst kælivéla eru kynnt, afköst blásara (eims), varmaleiðni, varmamótstaða, heildarvarmamótstaða, varmastuðlar og varmaberar. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunneiningum ISO-staðlanna að því er varðar hitastig, þrýsting, massa, þéttleika og orku
  • loftslagsbreytingum, Kýótóbókuninni og hugtakinu hnatthlýnunarmáttur og notkun flúoraðra gróðurhúsalofttegunda
  • viðeigandi ákvæðum reglugerðar (EB) nr. 842/2006 og viðeigandi íslenskum reglugerðum
  • kröfum og verklagsreglum vegna meðhöndlunar, geymslu og flutninga á menguðum kælimiðli og olíum
  • þeim fræðigrunni sem kælitæknin byggist á, s.s. ferli kælimiðils í kælikerfi og notkun hx- og log ph-línurita
  • mismunandi tegundum kælimiðla og eiginleikum þeirra og gerð og uppbyggingu lítilla kælikerfa
  • helstu eðlisfræðihugtökum varmafræðinnar, s.s. varmaleiðni, varmaflutningi, eimun, þéttingu og uppsuðuhitastigi
  • táknmyndum sem notaðar eru við teikningar af kælikerfum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • gera sér grein fyrir á hvaða stöðum leki er líklegur í kæli-, loftræsti- og varmadælubúnaði
  • athuga skrár yfir búnað áður en leitað er að leka og ganga úr skugga um hvaða upplýsingar skipta máli
  • framkvæma sjónræna og handvirka skoðun á kerfum í samræmi við reglugerð (EB) nr. 1516/2007
  • færa upplýsingar í skrá um búnað
  • lesa teikningar af kælikerfi


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • annast eftirlit með leka með því að nota beina aðferð, sem felur ekki í sér rof á kælirásunum, sem um getur í reglugerð (EB) nr. 1516/2007
  • annast eftirlit með leka í kerfi með óbeinni aðferð í samræmi við reglugerð (EB) nr. 1516/2007 og notendahandbók
  • nota færanlegan mælingarbúnað, s.s. þrýstingsmælasamstæður, hitamæla og fjölmæla (AVO)
  • nota rafrænan lekaleitarbúnað
  • tengja og aftengja mæla og leiðslur þannig að losun verði sem minnst
  • tæma og fylla hylki með kælimiðli bæði í fljótandi formi og gufuformi
  • nota endurheimtarsamstæðu til að endurheimta kælimiðil og tengja og aftengja endurheimtarsamstæðu
  • tappa olíu, sem er menguð af flúoruðum gösum, af kerfi
  • nota vog til að vigta kælimiðilinn