JARÐ3LV05 - Jarðfræði - Lofthjúpur og veðurlag
Undanfari : JARÐ2AJ05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Verkefnamiðaður raungreinaáfangi í veður- og loftslagsfræði. Lögð er áhersla á lofthjúp jarðar og þá flóknu ferla sem stjórna veðurfari og loftslagi á jörðinni. Áhersla er lögð á loftslagsbreytingar og áhrif mannsins á þær. Unnið er með heimildaöflun á neti, tímaritum og bókum. Niðurstöður úr verkefnavinnu eru kynntar í stuttum skýrslum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• geislun sólar og rafsegulbylgjum í tengslum við hitastig
• árstíðum
• uppbyggingu og samsetningu lofthjúpsins
• gróðurhúsaáhrifum
• varmaflutningi í lofthjúpnum
• myndun úrkomu
• loft- og hafstraumakerfi jarðar
• loftslagsbeltum jarðar
• myndun og áhrifum veðurkerfa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• skilja dægursveiflur í hita og vindstyrk á jörðinni
• skilja áhrif afstöðu sólar og jarðar á árstíðir
• skilja áhrif mannsins á hnattrænar loftslagsbreytingar
• lesa í umhverfi sitt með tilliti til veðurfars og gróðurbelta
• setja upp, lesa úr og túlka flókin gögn úr töflum og á myndrænu formi
• nota gögn og heimildir í raunvísindum
• setja fram og túlka kort og gröf
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• gera sér grein fyrir samhengi í náttúrunni út frá þeim ferlum sem stýra loftslagi á jörðinni
• meta á gagnrýninn hátt og taka rökstuddar ákvarðanir er varða umgengni í náttúrunni í tengslum við mengun í lofthjúpi jarðar og hafinu
• geta á sjálfstæðan hátt aflað sér upplýsinga um náttúruvísindalegt efni og metið það á gagnrýninn hátt
• skilja upplýsingar um veðurfar og loftslag sem koma fram í fjölmiðlum og daglegri umfjöllun
• meta áhrif mannsins á umhverfi sitt í hnattrænu samhengi
• gera sér grein fyrir mun á skammtímabreytingum í veðurfari og langtímabreytingum í loftslagi
• gera sér grein fyrir þeim breytingum sem orðið geta á loftslagi og þeim ógnum sem af þeim stafa
• kunna skil á mismunandi loftslagsbelti á jörðinni