JARÐ3JS05 - Jarðfræði - Jarðsaga

Undanfari : JARÐ2AJ05 eða sambærilegur áfangi á öðru þrepi
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum kynnast nemendur sögu jarðar, þróun lífríkis og breytingum á landaskipan í tímans rás. Sérstök áhersla er lögð á myndunar- og mótunarsögu Íslands. Sjálfstæð vinnubrögð nemenda endurspeglast í verkefnavinnu þeirra. Helstu efnisatriði eru:

  • jarðsaga heimsins
  • upphaf lífs og þróun þess á mismunandi jarðsögutímabilum
  • náttúruhamfarir og áhrif þeirra á sögu jarðar
  • jarðsögutaflan
  • upphaf mannsins
  • aldursákvarðanir
  • jarðsaga Íslands
  • ísaldir og orsakir þeirra

 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • upplýsingum um jarðlög af jarðlagakortum
  • notkun jarðsögutöflunnar
  • áhrifum náttúrhamfara á sögu jarðar
  • lestri gagna um aldursákvarðanir
  • hugmyndum um orsakir ísalda

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • rekja í meginatriðum þróun lífs á jörðu
  • rekja upphafssögu mannsins
  • teikna þversnið eftir jarðlagakortum
  • nota segulkvarðann
  • reikna einföld dæmi um aldursákvarðanir

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja saman hagnýt jarðefni og þá jarðsögu sem leiðir til myndunnar hagnýtra efna
  • túlka jarðlagakort og skýra þá jarðlagauppbyggingu sem fram kemur á þeim
  • rökstyðja tengsl náttúrhamfara og þróunar lífs á jörðu
  • bera saman jarðsögu mismunandi landshluta Íslands
  • vinna sjálfstætt að afmörkuðum verkefnum nemendahópnum til handa
  • vinna í hópi að afmörkuðum verkefnum nemendahópnum til handa
  • tengja jarðlög milli jarðlagasniða
  • fjalla á gagnrýnin hátt um hugmyndir um orsakir ísalda