ÍÞRG2HA04 - Íþróttagrein - Handknattleikur

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði handknattleiks. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundavallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barana og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur í sundur í smáar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • tækniþáttum handbolta
  • leikfræði
  • leikreglum
  • þjálfunaraðferðum
  • kennslufræði
  • skipulagi á þjálfun
  • sögu handknattleiks

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • framkvæma grunnæfingar í handknattleik
  • þjálfa handknattleik
  • eiga samskipti við iðkendur og alla þá sem koma að íþróttagreininni

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta þjálfað og leiðbeint börnum í handknattleik
  • geta útbúið þjálfunaráætlanir
  • dæma handknattleik