ÍÞRF2SÁ05 - Íþróttafræði - Íþróttasálfræði
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum verður fjallað um helstu þætti íþróttasálarfræðinnar. Skoðuð verða ýmis áreiti sem áhrif hafa á afreksgetu íþróttamanna. Enn fremur fjallar áfanginn um spennu (streitu) og helstu spennuvalda, slökun og hugrækt af ýmsu tagi. Skoðað verður hvernig vinna má með sjálfstraust og sjálfsmynd íþróttamannsins í því skyni að bæta árangur. Fjallað verður um muninn á einstaklings- og hópíþróttum og farið í áhrif félagslegra þátta á íþróttamanninn.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu hugrænu þáttum sem hafa áhrif á frammstöðu íþróttafólks
- mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar íþróttafólks og almennt í íþróttaiðkun
- áhrifum streitu og kvíða á frammistöðu íþróttafólks
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna markvisst með sjálfstraust íþróttafólks
- koma auka á og minnka streitu og kvíða meðal íþróttafólks
- nýta sér hugræna þjálfun
- setja sér skammtíma- og langtímamarkmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- minnka spennustig íþróttamanna í æfingu og leik
- hvetja iðkendur til dáða og fá þá til til leggja sig fram eftir mætti í leik og starfi
- greina aðstæður þar sem hægt er að beita sálfræðikenningum
- rökræða gildi sálfræði fyrir íþróttaiðkun og þjálfun
- útskýra mikilvægi sálfræði fyrir íþróttaiðkun og þjálfun