ÍÞLE3ÞÍ05 - Íþróttalífeðlisfræði
Undanfari : Líffæra og lífeðlisfræði 1 og 2
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í þessum áfanga verður farið í grunnaatriði þjálfunarlífeðlisfræðinnar s.s. notkun orkuefna og starfsemi beinagrindavöðva. Einnig er farið í aðlaganir líkamans við þjálfunaráreiti og stjórnun á líkamshita við æfingar. Nemendur læra einnig að meta orkunotkun við hreyfingu og læra um mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna. Farið verður í stjórnun öndunar- og blóðrásarkerfis við hreyfingu. Uppbygging og starfsemi hjartans verður tekin fyrir og hjartalínurit kynnt fyrir nemendum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvaða áhrif regluleg þjálfun hefur á hjarta- og æðakerfið
- samspili orkuflutnings, orkumyndunar og orkunotkunar líkamans
- orkuefnasambandinu ATP, uppbyggingu þess og hvaða hlutverki það gegnir
- hitastýringu og samvægi líkamans
- starfsemi beinagrindarvöðva
- loftfirrtri og loftháðri orkumyndun
- hvernig mælingar á þreki fara fram og hvernig niðurstöðum er lýst
- uppbyggingu og starfsemi hjartavöðvans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- miðla þekkingu sinni á áhrifum þjálfunar til skjólstæðinga sinna
- reikna út stærðir sem fylgja þjálffræði s.s. súrefnisupptöku
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta útskýrt viðbrögð hjarta- og æðakerfis við auknu álagi
- gera sér grein fyrir samspili orkuefna við orkumyndun við mismunandi álag
- nýta þekkingu sína í þjálffræði til að taka upplýstar ákvarðanir varðandi heilbrigðan lífsstíl
- útskýra hvernig öndunarþröskuldur og mjólkursýruþröskuldur gefa vísbendingar um líkamsástand
- útskýra hvernig líkaminn losar sig um umfram hita við hreyfingu
- útskýra mismunandi framsetningar á þrektölum
- lýsa áhrifum þjálfunar á starfsemi hjartans