ITEI2GB05 - Iðnteikning háriðna 2
Undanfari : ITEI1GB05
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemandi nýtir sér áunna þekkingu í teikningu, lita- og formfræði í þrívíddarsköpun með mismunandi efnum og aðferðum á gínuhaus. Kynntar mismunandi uppsetningar á stemningsmyndum (moodboard) til glöggvunar á stíl og tíðaranda. Þjálfuð hugmyndavinna og framsetning á útfærslu fyrir eigin hársnyrtistofu, umhverfi hennar, vörur og þjónustu. Kynnt mismunandi forrit og aðferðir í stafrænni myndvinnslu. Áhersla lögð á að nemandi kynni og verji verkefni sem hann vinnur í áfanganum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- formsköpun í þrívídd á höfði gínuhauss
- stemningsmyndum (moodboard) til skýringar á hugmyndavinnu
- þróunar- og hugmyndavinnu sem og skipulagningu við að stofnsetja eigin stofu
- mismunandi forritum í stafrænni myndvinnslu
- mikilvægi þess að kynna og svara fyrir eigin verk og hugmyndir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- sýna og skapa formhönnun í þrívídd
- setja saman skýrar táknrænar myndir af eigin hugmyndavinnu
- tengja saman hugmyndaferli að eigin stofu frá upphafi til endanlegrar niðurstöðu
- velja rétt forrit til að ná fram sem bestum eiginleikum í stafrænni myndvinnslu á hverjum tíma
- leggja fram, kynna og verja eigin verkefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota mismunandi aðferðir til að skapa og hanna ýmsar þrívíddar útgáfur sköpunar á gínuhaus
- sýna og kynna hugmynd að eigin stofu og þeim þáttum sem tengjast henni
- taka eigin myndir (eða annarra) og breyta þeim sem best má vera og nýta þær til kynningar á fjölbreyttan hátt